Ég hef aldrei lagt það í vana minn að strengja eitthvað sérstakt áramótaheit. Í ár ætla ég nú samt að hafa nokkur atriði ofarlega í huga.
# Vera alltaf vel til fara þegar tækifæri gefst til. - Ég hef nú yfirleitt haft það fyrir reglu að vera ágætlega fín á því, en eftir að hafa tekið Mad Men maraþon hef ég gert mér grein fyrir að það er ekkert fallegra og meira aðlaðandi en vel til haft fólk.
# Fara á Hróarskeldu eða sambærilega tónlistarhátíð. Eða bara einhverja fáránlega epic tónleika. - Það er bara komin tími á það. Það er ekkert sem gerir mig jafn hamingjusama og góðir tónleikar, og ekki sakar ef þeir eru í fleirtölu.
# Skipuleggja tímann sem ég eyði á internetinu betur. - Því hann er sorglega stór hluti sólarhringsins. Hætta að skoða fáránlega tilgangslausar heimasíður, og síðast en ekki síst, minnka facebooknotkun verulega mikið. Halló, alvöru lífið er þarna úti!
# Forgangsraða betur. - Taka góðar stundir með fjölskyldunni fram yfir óþarfa sukk.
# Stunda almennt heilbrigðara líferni en ég gerði á síðastliðnu ári. - Í stuttu máli sagt, þá ætti það ekki að verða erfitt.
# Reyna að hafa hreint í herberginu mínu. - Það verður líklegast erfiðast af þessu öllu. Ég er algjör sóði. Það eru alltaf, ALLTAF, föt á gólfinu mínu sem er hrikalegur ósiður. Á árinu 2010 var herbergið mitt max hreint í svona tvo daga í einu.
# Lesa meira. - Ég gæti t.d. gert það við tímann sem ég ætla að hætta að eyða á netinu. Það róar hugann svo mikið að lesa og svo er það bara svo hollt fyrir sálina. Það meiga líka klárlega vera tískubækur inn á milli. So many books, so little time.
# Læra að elda. - Allavegana einhverja 3 góða rétti. Það er byrjun.
# Gera mitt besta til þess að vera besta útgáfan af sjálfri mér. - T.d. líta í eigin barm áður en ég gagnrýni aðra og reyna að sjá það besta í fólki. Líka vera þolinmóð, umburðarlynd og reyna að láta gott af mér leiða.
# Halda dagbók - Lykillinn að því að standa við allt ofangreint.
Listinn varð lengri en ég ætlaði en mér finnst hann nú samt bara nokkuð góður og framkvæmanlegur.
Þórhildur
Góð áramótaheit. Vinkona mín sagði einusinni eitthvað á þessa leið við mig: "All we can really do is: to, every day, try to get a little closer to being that ideal version of ourselves that we imagine in our heads." Ég hugsa oft um þetta, bæði þegar ég er að reyna að vera dugleg en líka þegar ég fer á bömmer yfir að vera ekki að gera nógu mikið / vera ekki nógu dugleg. Þá reyni ég bara að gera einhvern einn lítinn hlut sem færir mig nær því að vera besta útgáfan á sjálfri mér og reyni að vera ánægð með það.
ReplyDeleteglæsileg áramótaheit. Ég er líka með nokkur svona "markmið".
ReplyDeleteGleðilegt nýtt ár sæta x
Snilldar áramóta-markmið, Gleðilegt nýtt ár!!
ReplyDelete